Endurnýjun með Ceramizer® felst í því að endurheimta upprunalega rúmfræði gangverks. Þá er átt við samverkandi yfirborð í vélbúnaði þar sem núningur á sér stað, með því að byggja upp keramik-málmlag með einstaka eiginleika.
Virkun Ceramizer® fer fram með venjulegri virkun vélar. Það nægir að bæta efninu út í heita olíu (í vél, gírkassa, vökvastýri) eða eldsneytið ef um er að ræða eldsneytisbæti. Virkun er auðveld í notkun og gerist af sjálfsdáðum.
Ceramizer®-agnir einkennast af mikilli viðloðun við málm, þær flytja málmagnir (sértækur flutningur) á slitna staði þar sem hár hiti myndast vegna núnings og dreifast þar. Á þessum stöðum endurbyggja sameinaðar agnir málms og Ceramizer® (með dreifingu) yfirborðið og mynda keramik-málmlag.
Vegna dreifingar Ceramizer® með málmyfirborðinu batnar kristalgrind málmsins, sem harðnar og fyllir upp í yfirborðslagið (varanlegt, órofa keramik-málm hlífðarlag myndast). Ferlið við myndun lagsins er kallað keramikmyndun. Þetta lag fyllir, hylur og sléttir úr örskemmdum og aflögunum á yfirborðum sem verða fyrir núningi. Þegar lagið er fullt þá stöðvast ferlið. Myndaða keramik-málmlagið er hart, endingargott, hefur lágan núningsstuðul, leiðir hita vel frá sér og er ónæmt fyrir háum hita og vélrænu álagi.
Efnaferillinn herðir og eykur slitþol núningsflata, að 0,02. Til samanburðar er núningstuðull snertingar stáls við stál 0,3 (Young Modulus). Harðleiki hlífðarlags er 4000-4500 MPa (400 – 450 KG/mm2). Til samanburðar er örharðleiki milt stáls að meðaltali 60 Kg/mm2. Þrýstiþol: 2500 Mpa (250 Kg/mm2).
Önnur verkun Ceramizer er breytir hún olíunni í segulolíu (e. ferrofluid). Það bætir smurningu, þéttir vel að málmflötum og hitaleiðni frá yfirborði þeirra. Hlífðarlagið heldur áfram eftir olíuskipti en segulmögnun olíu varir fram að næstu olíuskiptum, þar sem með þeim skiptum losnum við við segulmagnaðar agnir.
Ceramizer® vörur innihalda ekki teflon, blý eða mólýbden og stífla ekki olíusíur eða olíurásir, þar sem Ceramizer® agnirnar eru minni en op síunnar. Ceramizer® agnirnar eru allt að 2 míkron að stærð en op í olíusíu vélarinnar eru yfir 5 míkrómetrar. Auk þess myndast keramik-málmlagið aðeins þar sem málmur nuddast við málm, svo það er útilokað að lag myndist í olíurásum eða olíusíum.
Ceramizer® er ekki olíuþykkir, né svokallaður „mótordoktor“; einn skammtur af Ceramizer® er 4 g. Varan kemur ekki í veg fyrir „olíueyðslu“ í gegnum ventlaþéttingar þar sem ólíkt stimpilstrokkaparinu er enginn núningur milli málms og málms.
Til að lesa um vísindin á bakvið virkun Ceramizers þá er ritrýnd fræðigrein hér.