Hvaðan kemur Ceramizer? - Efnaferill fyrir endurnýjun hreyfilsins, gírkassa og annarra tækja

Hvaðan kemur Ceramizer?

Rússneskir jarðfræðingar uppgötvuðu upphaflega „valskipti“ þegar þeir voru að bora könnunarholur fyrir olíuiðnaðinn tóku þeir eftir því að þegarborað var í gegnum ákveðin jarðlög urðu borar skarpari frekar en að verða bitlausir.
Prófessor D.N. Garkunow og rannsóknarteymi hans (G.P. Shepenkov, W.J. Matioshenko,A.A. Polijakow) framkvæmdu fjölda prófana og uppgötvuðu fyrirbærið „valskipti yfirfærsla“ (e. Selective Transfer) þar sem, við ákveðnar aðstæður, agna getur flust yfir á „virkt“ yfirborð með rafstöðuhlöðun. Þessi uppgötvun hlaut gullverðlaun British Institute of Mechanical and Engineering árið 2005. Hér má sjá umfjöllun á vefsíðu bresku stofnuninnar. Hugmyndin um „valskipta yfirfærslu“ hefur síðan verið víða prófuð og aðlöguð til notkunar í bíla- og hergagnaiðnaði, sérstaklega hjá flughersveitum Austur-Evrópu.

 

Olíubrunnur í Texas.

Ceramizer® byggir á einstakri „nanó“ tækni sem endurbyggir og endurnýjar slitna fleti með því að þekja þá með keramík-málmhúð. Ceramizer® inniheldur örsmáar agnir af sérþróuðu efni sem bindast málmögnum sem eru til staðar í vélarolíunni og koma frá eðlilegu sliti. Þessar agnir bindast síðan við hvaða stál- eða steypujárnsflöt sem verður fyrir núningi með vísindalega sannaðri aðferð sem kallast „valskipta yfirfærsla“. Slitið yfirborð er því í raun endurbyggt með mjög smurandi hlífðarlagi úr keramík- og málmögnum. Þessi húð er mjög endingargóð og endist í þúsundir kílómetra jafnvel eftir olíuskipti.

 

Þessi aðferð hefur verið í notkun á öðrum sviðum sem hægt er að skoða nánar í eftirfarandi tenglum:

https://www.bodycote.com/chemically-formed-ceramic-coatings/

https://www.want.net/ceramic-coating-and-machining-unlocking-advanced-manufacturing-applications/

https://www.pcimag.com/articles/109786-unique-coating-reduces-friction-of-sliding-ceramic-metallic-and-polymer-components

 

 

 

Fyrri færsla
Mótor & Sport blað

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *